|
|
|
|

Sumarbúðir norrænna hjartveikra unglinga verða í Svíþjóð að þessu sinni og verður farið síðustu vikuna í júlí 2012.
Þeir sem hafa áhuga á að fara í sumarbúðirnar er bent á að hafa samband við Guðrúnu Bergmann á skrifstofu félagsins í síma 552 5744 eða senda tölvupóst á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
.
Umsóknarfrestur er til 31. mars, 2012.
Sjá nánar um unglingastarf Neistans hér.
Stjórn Neistans |
|
Fimmtudagur, 16. febrúar 2012 |
Bingó - BINGÓ
|
|
Neistinn býður félagsmönnum sínum í bingó laugardaginn 18. febrúar n.k. frá kl.12:00 til 14:00 í Seljakirkju. Fullt, FULLT af flottum vinningum eins og ávallt.
Svo gæðum við okkur á dýrindis pizzum að bingói loknu.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Stjórn Neistans |
|
Miðvikudagur, 08. febrúar 2012 |
Hjartaþegi hvetur þingheim
|
|
„Það sem vakir fyrir mér er að fá íslensku þjóðina til að vera gjafmildari á líffæri og að stytta bið einstaklinga eftir nýjum líffærum vegna veikinda sem ekki er hægt að lækna á annan máta,“segir Kjartan Birgisson hjartaþegi, sem í morgun afhenti þingheimi áskorun um að taka frumvarp um líffæragjafir á dagskrá þingsins sem allra fyrst.
|
|
Nánar...
|
|

Kæru félagsmenn og styrktaraðilar. Á hátíð ljóss og friðar óskum við ykkur gleðilegrar jólahátíðar og farsæls komandi árs.
Stjórn Neistans. |
|
|
|