|
Umhyggja hefur yfir að ráða orlofshúsi í Vaðlaborgum, í fallegri orlofshúsabyggð sem risið hefur við Eyjafjörð, gegnt Akureyri. Þangað geta félagar í Umhyggju og aðildarfélögum félagsins (þar með talið Neistanum) farið allan ársins hring og notið hins góða aðbúnaðar sem boðið er upp á í orlofshúsinu um leið og þeir njóta náttúrufegurðarinnar við Eyjafjörð.
Húsið er 80 m2, vel búið og aðgengi að þeim er gott fyrir fatlaða. Þar er hjónaherbergi, 2 svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og stofa. Veröndin er stór og góð og á henni er heitur pottur. Þeir sem dvalist hafa í Vaðlaborgum segja staðinn, húsið sjálft og allan aðbúnað eins og best verður á kosið.
Í Eyjafirði er útivistarsvæði skemmtilegt vetur, sumar, vor og haust og skammt undan er Hlíðarfjall með tæki sem gerir fötluðum kleift að renna sér í snjónum. Rétt er að benda fólki á að þar er engu síður ánægjulegt að dveljast að vetrarlagi.
Það er vel staðsett í Vaðlaheiði gegnt Akureyri og þangað er ekki nema örfárra mínútna akstur.
Þeim félagsmönnum sem hafa hug á að taka húsið á leigu er bent á að hafa samband við skrifstofu Umhyggju, s. 552-4242 eða senda póst á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
.
Til að sækja um sumarhús
Netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Sími: 552-4242
Hér má sjá fleiri myndir af og úr húsinu.
|